




Börnin unnu þetta verkefni með leikskólum
frá Póllandi og Ítalíu og skólum frá Spáni

Leikskólinn á Ítalíu heitir:
2C of primary school Cremonini-Ongaro of Bologna, in Italy!
Það voru 26 börn sem að tóku þátt frá þeim
Leikskólinn í Póllandi heitir:
48th kindergarten with special and integration units in Zabrze, Poland.
Það voru 14 börn sem að tóku þátt og voru þau 4 ára.

Skólarnir á Spáni komu frá fjórum bæjum sem eru nálægt hvor öðrum.
Þetta voru börn frá 1-6 bekk og voru þau 49 talsins

Leikskólinn á Íslandi heitir:
Holt
Það voru 22 börn á deildinni Hlíð sem tóku þátt.

Markmið verkefnisins
Var að skoða náttúruna okkar því hún er svo frábært námsumhverfi fyrir börnin. Börnin fá innblástur af litlu hlutunum í náttúrunni, eins og til dæmis fjöðrum.
Verkefnið var gert með það í huga að fylgja námskránni okkar eins og til dæmis með læsi, list, vísindum, skynjun, stafrænni tækni og félagslegum og persónulegum þáttum.
-Byggja upp þekkingu á náttúrulegum fjársjóði.
-Að styðja við forvitni og áhuga barnanna til að læra og takast á við allskonar áskoranir.
-Að byggja upp ímyndunarafl barnanna og efla sjálfstraust þeirra.
-Þróa frumkvæði og sjálfstæði nemendanna.
-Að mynda vitsmunalega getu í skapandi hugsun, þróa tungumálahæfni (auka orðaforða, auka tal og samskiptahæfni, getu til að hlusta)
-Að öðlast getu til að vinna í hópum (meðal nemenda í leikskólanum og einnig alþjóðlegum hópum).
-Að öðlast reynslu af því að nota erlent tungumál og skilja mikilvægi þess fyrir lífið.
Vettvangsferðir
Við fórum mikið í vettvangsferðir til að skoða náttúruna og einnig til að skoða ýmsar tegundir af fuglum. Börnin voru heilluð af fuglunum og ekki síður af fjöðrum þeirra. Börnin söfnuðu nokkrum fjöðrum til að skoða betur.


Börnin máluðu einnig myndir af fuglum











Við bjuggum til lag sem heitir
"my feathered friends"
https://youtu.be/aNU6d6D4EQ4

Börnin fengu einnig að heyra söguna um hann Ikarus og var þetta áhugaverð saga. Hún tengist fuglum og fjöðrum og ætlum við að leyfa ykkur að lesa smá part úr henni.

Sagan um Ikarus
Flestir þekkja söguna af Íkarusi, en hann er einn þeirra sem svo illa hafa farið að ráði sínu. Hann var sonur Dædalusar, mikils uppfinningamanns og arkitekts.
En að aðalatriðunum; Dædalusi og Íkarusi var varpað í fangelsi fyrir aðstoðina við Þeseif. Listamaðurinn Dædalus þreifst illa í prísundinni en kom auga á útgönguleið þrátt fyrir að engin leið væri gegnum háa fangelsismúrana. Hann leit til himins og sá að þar var fuglunum engin fyrirstaða og afréð því að smíða vængi í þeirra mynd. Hann safnaði saman fjöðrum og vaxi og gerði úr því vængina.
Dædalus festi vængina á sjálfan sig og Íkarus og brýndi fyrir honum að það væri ekki sama hvernig vængirnir væru notaðir. Ef hann flygi of lágt myndu vængirnir blotna, en flygi hann of hátt myndu sólargeislarnir bræða vaxið. Þeir hófu sig svo til flugs á vit frelsis og farsælli miða.
Tilfinningin var mögnuð og Íkarusi fannst hann geta sigrað heiminn. Hann virti fyrir sér útsýnið og naut sín til fullnustu. Hann gleymdi sér smám saman, treysti um of á vængina og vellíðanina sem fylgdu fluginu. Hann fór smám saman hærra og hærra, vitandi af hættunum og þrátt fyrir viðvaranir. Þar til loks hann fór að missa flugið, vaxið bráðnaði í geislum sólarinnar. Íkarus steyptist í sjóinn og þar með var hans saga öll.
Endirinn á sögunni
Börnunum langaði að búa til nýjan endi á söguna þannig að allir skólarnir komu með tillögur af endi og svo var kosin einn endir frá hverju landi.
Tillögurnar frá Íslandi voru:
1. Hann dettur í sjóinn og deyr.
2. Hann dettur í eldgosið og deyr.
3. Hann flytur til útlanda og býr þar
4. Ikarus breytist í sparibauk og það er hægt að setja pening í hann.
5. Hann datt á trampolín og lifði það af.
6. Hann datt ofan í holu sem að drengirnir í leikskólanum gerðu
7. Hann dettur í sjóinn og endar í Paradís.
8. Hann dettur í sjóinn og meiðir sig í rassinum.
Hugmyndirnar 4 sem að voru kosnar frá öllum löndunum voru:
Íslandi: Hann dettur í eldgosið og deyr
Spánn: Hrægammar frá Herce fóru til Gikklands, hittu Daedalus og Ikarus og þeir ferðuðust saman milli landa.
Ítalía: Ikarus hlustaði á föður sinn og fór aftur í skóla með fiðruðu vinum sínum.
Pólland: Ikarus var heppin hann datt ofan á fjall af púðum sem að komu með skipi.
Loka niðurstaða
Þegar loka niðurstaðan var kosin þá hittumst við öll á Google Meet fundi og var það mjög skemmtilegt. Öll löndin sungu lag og sungum við "sá ég spóa". Síðan voru niðurstöðurnar kynntar og var það Spánn sem að vann.
Spánn: Hrægammar frá Herce fóru til Gikklands, hittu Daedalus og Ikarus og þeir ferðuðust saman milli landa.
Póstur á milli landa
Á Google Meet fundinum fannst okkur tilvalið að senda fjaðrir á milli í pósti. Við fórum í vettvangsferð í miklu roki og fundum við bara örfáar fjaðrir en við náðum að senda eina fjöður á hvern stað og bréf með.
Hérna er pósturinn frá hinum löndunum.

Hvernig fannst ykkur eTwinning verkefnið okkar? (e. what did you think about the eTwinning assignments?)
Svör barnanna (e. children's answers):
-gott (e. good)
-Fínt (e. fine)
- Fallegt (e. beautyfull)
-Skemmtilegt (e. fun)
-Dásamlegt (e. wonderfull)
Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Ari: Allt, Ari teiknaði karl í vettvangsferð. (e. Everything, Ari drew a man on a field trip.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Ragnhildur: Að finna fjöður, Ragnhildur teiknaði fjaðrir. (e. Finding feathers, Ragnhildur drew feathers.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Sunneva: Finna fjöður, Sunneva teiknaði fjöður. (e. Finding feathers, Sunneva drew a feather.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið?(e. What did you enjoy about eTwinning?)
Unnar: Hlusta á söguna af Ikarus, Unnar teiknaði Ikarus og pabba hans. (e. Listening to the story of Ikarus, Unnar drew Ikarus and his father.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Jón Heiðar: Fjöður, Jón Heiðar teiknaði margar fjaðrir. (e. Feathers, Jón Heiðar drew many feathers.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Rakel: Að skoða fjaðrirnar, Rakel teiknaði krakkana í vettvangsferð að skoða fugla og fjaðrir. (e. Inspect the feathers, Rakel drew the children on a field trip exploring the birds and feathers.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Magnea: Að mála fjöður, Magnea teiknaði mynd af sér að mála fjöður. (e. Painting feather, Magnea drew a picture of herself painting a feather.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið?(e. What did you enjoy about eTwinning?)
Erik: Að skoða fjöður, Erik teiknaði mynd af fjöðrum. (e. Inspecting feathers, Erik drew a picture of feathers.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið?(e. What did you enjoy about eTwinning?)
Drífa: Vettvangsferðirnar, Drífa teiknaði karl í vettvangsferð. (e. Field trips, Drífa drew a man on a field trip.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Mikael: Mála fjöður, Mikael teiknaði mynd af fjöður. (e. Painting feather, Mikael drew a feather.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Harpa: Vettvangsferðirnar, Harpa teiknaði mynd af krökkum í vettvangsferð. (e. Harpa drew children on a field trip.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Óskar: Allt, Óskar teiknaði mynd af fjöður. (e. Everything, Óskar drew a feather.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Elvar: Allt, Elvar teiknaði mynd af fjöður. (e. Everything, Elvar drew a feather.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Emma: Að mála fuglana, Emma teiknaði mynd af fugli. (e. Painting birds, Emma drew a bird.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Auður: Að mála, Auður teiknaði mynd af sér að mála. (e. Painting, Auður drew a picture of herself painting.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Aría: Að hlusta á söguna um Ikarus, Aría teiknaði mynd af Ikarus og pabba hans í fangelsinu. (e. Listening to the story of Ikarus, Aría drew Ikarus and his father in prison.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Bastían: Sjá fjaðrirnar, Bastían teiknaði fullt af fjöðrum. (e. See the feathers, Bastían drew many feathers.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Sigrún: Sagan um Ikarus, Sigrún teiknaði Ikarus að fljúga og fjöður. (e. The story about Ikarus, Sigrún drew Ikarus flying and a feather.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið?(e. What did you enjoy about eTwinning?)
Dagur: Vettvangsferð, Dagur teiknaði mynd af sér í vettvangsferð. (Field trip, Dagur drew a picture of himself on a field trip.)

Hvað fannst þér skemmtilegast við eTwinning verkefnið? (e. What did you enjoy about eTwinning?)
Ásdís: Að fá póst, Ásdís teiknaði póst með fjöðrum frá Póllandi. (e. Getting the mail, Ásdís drew a mail with lots of feathers from Poland.)

Við fengum gæðastimpilinn Quality Label frá eTwinning samfélaginu fyrir verkefnið og erum við afar stolt af því.


Við vonum að þið hafið haft gaman að skoða þessa dásamlegu bók um verkefnið okkar því að við erum afar stolt af því.
Börnin ykkar á Hlíð


- < BEGINNING
- END >
-
DOWNLOAD
-
LIKE
-
COMMENT()
-
SHARE
-
BUY THIS BOOK
(from $8.59+) -
BUY THIS BOOK
(from $8.59+) - DOWNLOAD
- LIKE
- COMMENT ()
- SHARE
- Report
-
BUY
-
LIKE
-
COMMENT()
-
SHARE
- Excessive Violence
- Harassment
- Offensive Pictures
- Spelling & Grammar Errors
- Unfinished
- Other Problem

COMMENTS
Click 'X' to report any negative comments. Thanks!